Framtíð dönsku vinstri skyttunnar Lasse Andersson, leikmanns Füchse Berlín, er í mikilli óvissu nú þegar ljóst er orðið að danska liðið HØJ Elite er fallið niður í B-deild eftir tap í umspili fyrir KIF Kolding um helgina.
Andersson var búinn að semja við HØJ um að ganga til liðs við félagið í sumar en óraði þá ekki fyrir því að liðið myndi falla niður í dönsku B-deildina.
Allt fór í skrúfuna hjá HØJ Elite
Andersson hefur gefið það út að hann vilji flytja aftur heim til Danmerkur af persónulegum ástæðum en sömuleiðis hefur Andersson viðurkennt að vera ekki viss um að vilja taka slaginn í B-deild.
„Ef það gerist verð ég að íhuga málið,“ sagði hann í hlaðvarpsþættinum Kretzsche und Schmiso, er Andersson var spurður hvað hann myndi til bragðs taka færi svo að HØJ myndi falla.
Sérstakar aðstæður fyrir Lasse
Ekki bjóst Andersson, sem er ein besta vinstri skytta heims, við því að það myndi gerast enda stefndi HØJ hátt. Öflugir leikmenn á við Hampus Wanne, Michael Daumgaard og Hans Óttar Lindberg Tómasson léku með liðinu á nýafstöðnu tímabili og búið var að semja við Andersson, sænska ungstirnið Axel Månsson og markvörðinn reynda Jannick Green fyrir næsta tímabil.
„Sem stendur er ekki búið að komast að neinu samkomulagi. HØJ er einungis nýfallið. Þetta eru sérstakar aðstæður fyrir Lasse. Við höldum áfram að skoða allan markaðinn,“ sagði Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse, í samtali við Handball World, um það hvort Andersson gæti tekið eitt tímabil til viðbótar með liðinu.


