- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Þorvaldur Örn heldur til Póllands

- Auglýsing -

Þorvaldur Örn Þorvaldsson, línumaður Íslands- og deildarmeistara Vals, hefur ákveðið að þekkjast samningstilboð GE Wybrzeże Gdansk í Póllandi og gengur til liðs við félagið í sumar.

Samningur Þorvalds Arnar við Val rennur út nú í sumar en Wybrzeże Gdansk bauð honum samning í janúar eftir að Þorvaldur Örn skoðaði aðstæður og æfði með liðinu.

Þorvaldur liggur enn undir feldi


Handkastið skýrði frá því fyrir helgi að hann hefði nú ákveðið að samþykkja tilboðið og reynir línumaðurinn ungi því fyrir sér í atvinnumennsku í fyrsta sinn.

Þorvaldur Örn er 22 ára gamall. Wybrzeże Gdansk hafnaði í fjórða sæti í efstu deild Póllands og féll úr leik í undanúrslitum úrslitakeppninnar gegn ríkjandi meisturum Wisla Plock, sem mætir erkifjendunum í Industria Kielce í úrslitum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -