Sebastian Alexanderson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Aftureldingar í handknattleik. Ekki er tjaldað til einnar nætur því Sebastian skrifaði undir þriggja ára samning við félagið. Sebastian hefur tvö síðustu ár þjálfað kvennalið Víkings í Grill 66-deildinni, þeirri sömu og Aftureldingarliðið er í.
Til fróðleiks má geta að Sebastian var markvörður Aftureldingar á árunum 1995–1998 og þekkir þar af leiðandi nokkuð til að Varmá.
Sebastian var á dögunum ráðinn afreksþjálfari hjá handknattleiksdeild Hauka. Í tilkynningu Aftureldingar kemur fram að ráðning Sebastians til Aftureldingar sé gerð að samráði við Hauka.
„Stjórn handknattleiksdeildar er gífurlega stolt af þessari ráðningu og glöð með að Sebastian hafi viljað taka þátt í þeirri uppbyggingu og vegferð sem er fram undan í kvennaboltanum í Mosfellsbæ,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Aftureldingar í dag.
Sebastian, sem er fyrrverandi landsliðsmarkvörður, var síðast þjálfari kvennaliðs Víkings frá 2024 til 2026. Hann þjálfaði lengi á Selfossi, var þjálfari karlaliðs Fram tímabilið 2020-2021 og þjálfari karlaliðs HK frá 2021 til 2024.
Andrés Gunnlaugsson og Örn Ingi Bjarkason þjálfuðu kvennalið Aftureldingar á síðasta keppnistímabili. Engum sögum fer af þeim í tilkynningu félagsins.



