Handknattleiksdeild Hauka hefur ráðið Sebastian Alexanderson til starfa hjá deildinni. Sebastian kemur inn í þjálfarateymi deildarinnar sem afreksþjálfari þar sem hann mun sinna einstaklingsþjálfun fyrir unga og upprennandi leikmenn deildarinnar.
Sebastian mun koma að og sinna bæði verkefnum sem snúa að yngri leikmönnum meistaraflokka og yngri flokka félagsins og hjálpa þeim í sinni þróun sem handknattleiksmenn.
„Sebastian þarf vart að kynna fyrir handknattleiksfólki en hann hefur sinnt meistaraflokks- og afreksþjálfun undanfarna áratugi en síðustu ár hefur hann þjálfað meistaraflokk kvenna hjá Víkingi í Grill 66 deild kvenna.
Koma Sebastians styrkir þjálfarateymi deildarinnar til muna og ýtir undir faglega þjálfun ungra og upprennandi leikmanna félagsins sem mun hjálpa þeim í átt að sínum markmiðum. Velkominn á Ásvelli Sebastian!“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar Hauka.
Sebastian, sem er fyrrverandi landsliðsmarkvörður, var síðast þjálfari kvennaliðs Víkings frá 2024 til 2026. Hann þjálfaði lengi á Selfossi, var þjálfari karlaliðs Fram tímabilið 2020-2021 og þjálfari karlaliðs HK frá 2021 til 2024.



