„Mér líður ótrúlega vel. Þetta var frábært,“ sagði Lovísa Thompson, mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar, í samtali við Handboltapassann eftir að lið hennar Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í íþróttamiðstöð Vestmanneyja í kvöld.
Valur vann einvígið 3:1 eftir að hafa óvænt tapað stórt í þriðja leiknum í N1 höllinni á Hlíðarenda. Lovísa sagði það hafa verið auðvelt að gíra sig upp í leik kvöldsins eftir átta marka tap í leiknum á undan.
Lovísa sú besta í úrslitakeppninni
„Klárlega. Um leið og við töpuðum síðasta leik þá verð ég að viðurkenna það að ég hlakkaði eiginlega til að koma hingað af því að það er ótrúlega gaman að spila hérna og við sýndum hrikalega frammistöðu í síðasta leik.
Ekki það að ÍBV er ógeðslega gott lið líka. Við erum tvö jafn góð lið og maður bjóst alveg við því að þær myndu koma á milljón af því að þær ætluðu ekki í sumarfrí.
Mér fannst líka leiðinlegt hvernig við mættum í þann leik, vitandi að við gætum unnið þetta á heimavelli. En ég er mjög ánægð að við komum grimmar í leikinn í dag.“
Spurð hvort það hefði verið skemmtilegra að vinna Íslandsmeistaratitilinn í oddaleik á heimavelli heldur en í Vestmannaeyjum í kvöld eins og raunin varð sagði hún:
„Það hefði alveg verið gaman að prufa það en ég er líka mjög fegin að þetta sé búið. Ég verð að viðurkenna það.“
Þær eiga þetta svo skilið
Valur hyggst fagna sigrinum vel í Vestmannaeyjum í kvöld og gaf Lovísa sér tíma til þess að hrósa sérstaklega ungum leikmönnum Vals sem hafa verið í stórum hlutverkum á tímabilinu.
„Við ætlum að nýta kvöldið vel og fagna innilega. Þetta er búinn að vera ótrúlega langur og strangur vetur. Ef þú hefðir sagt við mig í byrjun tímabils að við myndum standa uppi með alla titlana þá veit ég ekki hvað ég hefði sagt. Við erum búin að lenda í þvílíku áföllunum.
Valur er búinn að vera lið sem er alltaf stabílt, ár eftir ár, og með geggjaða leikmenn. Í dag erum við með Laufeyju [Helgu Óskarsdóttur] og Örnu [Karitas Eiríksdóttur] sem bera þungann af sóknarleiknum, og Guggu [Guðrúnu Heklu Traustadóttur] og Ágústu [Rún Jónasdóttur] líka.
Þetta eru allt kjúllar og þær eru að taka ótrúlegum framförum, taka þvílíka ábyrgð og ég er svo fegin og glöð af því að þær eiga þetta svo skilið. Ég gæti dásamað þær og það eru örugglega allir búnir að dásama þær endalaust.
Þær eiga alveg skilið allt lof og eru framtíðin. Það er ógeðslega gaman að fá að vera með þeim hérna í dag og hjálpa þeim líka,“ sagði Lovísa Thompson einlæg í samtali við Handboltapassann.


