- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Firnasterkur lokahópur U18 ára landsliðsins

- Auglýsing -

Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon, þjálfarar U18 ára landsliðs karla, hafa valið þá 16 leikmenn sem koma til með að taka þátt í Evrópumótinu í aldursflokknum í sumar. Mótið fer fram í Serbíu frá 29. júlí til 9. ágúst.

Auk þess hefur þjálfarateymið valið þrjá leikmenn sem eru til vara ef til forfalla kemur.


Þrátt fyrir ungan aldur er töluverður fjöldi leikmanna liðsins þegar búinn að festa sig í sessi í liðum sínum. Freyr Aronsson hjá Haukum, Gunnar Róbertsson hjá Val og Ómar Darri Sigurgeirsson hjá FH eru þeirra á meðal.

Morgan Goði Garner spilar auk þess reglulega í markinu hjá ÍBV og Brynjar Narfi Arndal hjá FH er þá gífurlegt efni, en hann er einungis 15 ára gamall.

Lokahópurinn samanstendur af eftirfarandi leikmönnum:

Markverðir:
Anton Máni Francisco Heldersson, Val.
Morgan Goði Garner, ÍBV.
Sigurmundur Gísli Unnarsson, ÍBV.

Aðrir leikmenn:
Alex Unnar Hallgrímsson, Fram.
Anton Frans Sigurðsson, ÍBV.
Bjarki Snorrason, Val.
Brynjar Narfi Arndal, FH.
Freyr Aronsson, Haukum.
Gunnar Róbertsson, Val.
Kristófer Tómas Gíslason, Fram.
Logi Finnsson, Val.
Matthías Dagur Þorsteinsson, Stjörnunni.
Ómar Darri Sigurgeirsson, FH.
Patrekur Smári Arnarsson, ÍR.
Ragnar Hilmarsson, Selfossi.
Sigurður Atli Ragnarsson, Val.

Varamenn:
Aron Leo Guðmundsson, Selfossi.
Kári Steinn Guðmundsson, Val.
Örn Kolur Kjartansson, ÍR.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -