Alexandra Líf Arnarsdóttir, fyrirliði Hauka og landsliðskona, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt. Verður hún því áfram á Ásvöllum næstu árin, þó ekki komi fram í tilkynningu handknattleiksdeildar Hauka hve langur samningurinn er.
Alexandra Líf er 25 ára gömul og leikur í stöðu línumanns ásamt því að vera sterkur varnarmaður. Ásamt því að leika með Haukum hefur hún einnig leikið með HK hér á landi og Fredrikstad Bkl. í Noregi.
Alexandra Líf hefur að undanförnu verið hluti af íslenska A-landsliðinu og lék meðal annars með því á HM í Þýskalandi í lok síðasta árs.
„Það er því mikið ánægjuefni að Alexandra framlengi samning sinn við Hauka og er það liður í að halda áfram að berjast um alla þá titla sem í boði eru. Áfram Haukar,“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Hauka.


