- Auglýsing -
Íslenska karlalandsliðið mætir því egypska í öðrum vináttuleik liðanna í Kaíró í Egyptalandi klukkan 16 í dag. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.
Liðin mættust einnig á miðvikudag þar sem Ísland vann eins marks sigur, 31:30, eftir spennandi leik. Egyptaland er ríkjandi Afríkumeistari.
Bæði lið hafa þegar tryggt sér sæti á HM 2027 í Þýskalandi og nýta því yfirstandandi landsleikjahlé til þess að spila vináttuleiki.
Leikur dagsins
Vináttuleikur A-landsliðs karla:
Kaíró: Egyptaland – Ísland kl. 16 – Sýndur beint á RÚV.
- Auglýsing -


