- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Gísli Þorgeir getur slegið met í Meistaradeildinni

- Auglýsing -

Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikmaður SC Magdeburg og íslenska landsliðsins, stendur frammi fyrir því að geta slegið eftirsóknarvert met í Meistaradeild Evrópu. Hann hefur tvívegs unnið keppnina með Magdeburg og í bæði skiptin verið valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar.

Raunar eru það einungis tveir leikmenn, báðir íslenskir, sem hafa tvisvar unnið til verðlaunanna. Aron Pálmarsson var valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar sem leikmaður THW Kiel árið 2014 og sem leikmaður Veszprém tveimur árum síðar.


Eina ferðina enn er Magdeburg komið í undanúrslit Meistaradeildarinnar og fari allt á besta veg hjá Gísla Þorgeiri getur hann orðið fyrsti leikmaðurinn í sögu keppninnar sem auðnast að vera valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar þrisvar sinnum.

Aron sér á báti

Þýski miðillinn Handball World rifjar upp að frá því verðlaunin voru fyrst veitt árið 2014 hafi það að vinna Meistaradeildina aukið líkurnar á að leikmaður sé valinn bestur. Einungis þrisvar hafi leikmenn úr tapliði í úrslitaleiknum unnið til verðlaunanna.

Aron er sér á báti þar vegna þess að Kiel og Veszprém töpuðu báðum úrslitaleikjunum þegar hann var valinn bestur. Artsem Karalek, línumaður hjá Industria Kielce, er eini leikmaðurinn til viðbótar sem hefur unnið verðlaunin sem silfurverðlaunahafi með liði sínu.

Aron vann hins vegar Meistaradeildina þrisvar sinnum á ferli sínum; með Kiel árin 2010 og 2012 og FC Barcelona 2021.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -