- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Stemning í Færeyjum, tómahljóð er víða, Cupic

- Auglýsing -
  • Uppselt er á viðureign Færeyinga og Bosníumanna í undankeppni HM karla sem fram fer í þjóðarhöll Færeyinga í Þórshöfn í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 18. Vel á fjórða þúsund Færeyinga tryggðu sér aðgöngumiða. Síðustu miðarnir seldust í gærmorgun.
  • Færeyingar unnu fyrri leikinn sem fram fór í Bosníu á fimmtudaginn, 24:22, og eiga þar með góðan möguleika á að tryggja sér keppnisrétt á HM karla í fyrsta sinn en þeir hafa verið með á tveimur síðustu Evrópumótum.
  • Víða er tómara hljóð í peningakassanum um þessar mundir en hjá Handknattleikssambandi Íslands. Danska úrvalsdeildarliðið København Håndbold er í mestu kröggum um þessar mundir og þarf jafnvirði tuga milljóna íslenskra króna inn í reksturinn á næstu vikum til þess að halda úti keppnisliði í úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili. København Håndbold vann danska meistaratitilinn 2018.
  • Allt frá stofnun København Håndbold fyrir 13 árum hefur félagið verið rekið með tapi. Fjáraflamaðurinn Kim Mikkelsen sem stjórnað hefur félaginu og nánast átt það frá upphafi hefur ár hvert rétt af skútuna. Nú mun vera svo komið að Mikkelsen hefur tilkynnt að lengra er hann ekki einn og óstuddur tilbúinn að ganga við að bjarga árlegum halla á rekstrinum.
  • Sænska handknattleiksliðið Eskilstuna Guif, sem er mörgum Íslendingum að góðu kunnugt, er einnig í stökustu vandræðum vegna fjárskorts. Eftir því sem fram kemur á handbollskanalen.se vantar félagið um tvær milljónir sænskra króna, jafnvirði 26 milljóna íslenskra kr. fyrir lok þessa mánaðar ef ekki að fara illa.
  • Ivano Cupic hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Vardar Skopje í NorðurMakedóníu. Cupic, sem er fyrrverandi landsliðsmaður Króatíu, hefur lyft Vardar upp eftir að hann tók við þjálfun þess á síðasta ári eftir langt erfiðleikatímabil. Vardar stendur vel að vígi í kapphlaupinu um meistaratitilinn og virðist vera að stíga út úr skugga Eurofarm Pelister sem verið hefur sterkasta lið landsins undanfarin ár.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -