Jannick Green, markvörður PSG og danska landsliðsins, kveðst enn hafa áhuga á því að snúa aftur í heimahagana og leika með HØJ Elite þrátt fyrir að liðið hafi mjög óvænt fallið niður í dönsku B-deildina.
Green, sem er 37 ára gamall, var fyrir nokkru síðan búinn að semja við HØJ um að ganga til liðs við félagið í sumar og óraði þá ekki fyrir því að liðið myndi falla úr dönsku úrvalsdeildinni. Það er hins vegar raunin eftir tap fyrir KIF Kolding í umspili.
„Þetta er mjög pirrandi. Kannski hefðum við átt að undirbúa okkur betur andlega en svona er þetta stundum. Maður er fastur í eigin heimi og vonast eftir því að allt gangi eftir. Sem betur fer eru þeir mjög bjartsýnir á framtíð verkefnisins.
Þeir ætla að reyna að halda áfram og mér finnst það frábært. Svo þurfum við að ræða saman og ganga úr skugga um hvort ég sé ennþá hluti af verkefninu. Ég vona það.
En á sama tíma er það ljóst að ég verð að fá það á hreint hvort við verðum með nógu gott lið sem ég hef trú á að geti komist strax aftur upp um deild. Annars yrði það náttúrlega erfitt fyrir mig að vera hluti af því. En ég hef ekki fengið nein slík skilaboð hingað til,“ sagði Green í samtali við TV 2 Sport.



