- Auglýsing -
Inga Dís Axelsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Selfoss og leikur því áfram með liðinu á næsta tímabili. Selfoss féll úr Olísdeildinni og leikur því í Grill 66 deildinni á komandi tímabili.
Inga Dís er 18 ára gömul og hefur leikið með meistaraflokki Selfoss undanfarin tvö tímabil. Hún lék 16 leiki í Olísdeildinni á nýafstöðnu tímabili og skoraði í þeim fjögur mörk.
„Inga Dís er fjölhæfur leikmaður, jafnt í vörn og sókn sem hefur bætt sig mikið undanfarin misseri. Handknattleiksdeild Selfoss er gríðarlega ánægð með undirritunina og erum við spennt að sjá Ingu Dís halda áfram að vaxa í vínrauðu treyjunni næstu árin,“ sagði meðal annars í tilkynningu frá handknattleiksdeild Selfoss.
- Auglýsing -



