- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Arna Sif framlengir í Úlfarsárdalnum

- Auglýsing -

Arna Sif Jónsdóttir, bráðefnilegur markvörður Fram, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til sumarsins 2028. Hún er einungis 16 ára gömul og fagnar 17 ára afmæli sínu á fimmtudag.

Þrátt fyrir ungan aldur lét Arna Sif vel til sín taka með meistaraflokki Fram en auk þess leikur hún með U-liði Fram og 3. flokki félagsins.


Arna Sif gekk til liðs við Fram frá Val fyrir nýafstaðið tímabil og stimplaði sig strax vel inn. Hefur hún einnig leikið fyrir yngri landslið Íslands.

„Við erum virkilega spennt að sjá áframhaldandi þróun og framfarir hjá Örnu og erum mjög ánægð að halda henni lengur hjá okkur hér í Úlfarsárdalnum,“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Fram.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -