- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Guðjón Valur tjáir sig um framtíðina

- Auglýsing -

Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari VfL Gummersbach, er samningsbundinn félaginu til sumarsins 2027. Christoph Schindler, framkvæmdastjóri Gummersbach, vill gjarna halda honum lengur.

Guðjón Valur ræddi framtíð sína í hlaðvarpinu First 7 og kvaðst þar rólegur yfir stöðunni.


„Síðast þegar ég framlengdi var það í nóvembermánuði. Svo er ekki eins og ég sé við það að halda á brott. Það eru engin vandamál. Við tilkynnum þetta á hentugum tímapunkti.

Við fjölskyldan eru mjög ánægð hér í Gummersbach, svo sannarlega. Við erum líka stolt af því sem við höfum áorkað hér,“ sagði hann.

Samstarfið við Schindler gangi vel. „Við munum halda áfram að ræða saman. Ég veit að svo stöddu ekki nákvæmlega hvenær það verður en ég er ekki að stressa mig neitt á þessu.


Það sama á við um Christoph. Ég veit ekki hvort ég verði hér áfram í eitt ár eða fimm,“ sagði Guðjón Valur og bætti því við að hann dreymi um að komast í úrslitahelgi með Gummersbach, hvort sem það væri í Evrópukeppni eða í þýsku bikarkeppninni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -