- Auglýsing -
Nökkvi Snær Óðinsson, leikmaður ÍBV, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna aðeins 27 ára gamall. Kemur þetta fram í tilkynningu frá handknattleiksdeild ÍBV.
Nökkvi Snær lék alla tíð með ÍBV og varð til að mynda Íslandsmeistari með liðinu árið 2023. Lék hann sem vinstri hornamaður.
„Í gegnum árin hefur hann verið dýrmætur hluti af félaginu og lagt sitt af mörkum með dugnaði, metnaði og góðum karakter, einnig var Nökkvi lykilmaður hjá okkur í Íslandsmeistaratitli 2023. Framlag hans til félagsins verður seint fullþakkað.
Við viljum þakka Nökkva Snæ fyrir allar stundirnar, baráttuna og tryggðina við ÍBV og óskum honum alls hins besta í því sem fram undan er,“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar ÍBV.
- Auglýsing -



