- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Lindberg, Morros, Zwickau, Øverby, þrír kvaddir, Green

- Auglýsing -
  • Danski handknattleiksmaðurinn Hans Lindberg hefur ákveðið að leggja keppnisskóna á hilluna og taka í staðinn við starfi íþróttastjóra handknattleiksliðsins HØJ. Liðið féll á dögunum úr dönsku úrvalsdeildinni eftir eins árs dvöl. Lindberg, sem verður 45 ára gamall í sumar, er einn af arkitektum liðsins.
  • Annar gamalreyndur handknattleiksmaður, Viran Morros, hefur hins vegar hætt að leika handknattleik og snúið sér að þjálfun. Morros var nýlega ráðinn þjálfari ungmennaakademíu HSC Suhr Arau í Sviss.
  • Þýska handknattleiksliðið BSV Sachsen Zwickau sem Lilja Ágústsdóttir leikmaður Vals gengur til liðs við í sumar hefur tryggt sér þátttöku í efstu deild á næstu leiktíð. Liðið bjargaði sér með bærilegum árangri í umspilskeppni liðanna sem höfnuðu í neðri hluta efstu deildar.
  • Norski landsliðsmaðurinn Petter Øverby hefur ákveðið að ganga til liðs við HSG Wetzlar í sumar. Hann hefur leikið með THW Kiel undanfarin fjögur ár. Øverby er bjartsýnn á að Wetzlar haldi sæti sínu í efstu deild.
  • Emil Nielsen, Domen Makuc og Antonio Bazán verða kvaddir með viðhöfn eftir síðasta leik Barcelona í spænsku 1. deildinni á föstudaginn. Allir kveðja þeir liðið í sumar.
  • Norska landsliðskonan Maja Muri kveður Molde í sumar og gengur til liðs við rúmenska liðið SCM Craiova, sem e.t.v. væri ekki í frásögur færandi nema vegna þess að hún verður samherji Theu Imani Sturludóttur, leikmanns Vals, sem einnig hefur samið við SCM Craiova.
  • Danski landsliðsmarkvörðurinn Jannick Green er sagður vera undir smásjá serbneska meistaraliðsins Partizan Belgrad. Green hefur þegar samið við danska liðið HØJ en eftir að liðið féll úr úrvalsdeildinni hafa runnið tvær grímur á Green og fleiri leikmenn sem samið hafa við liðið.
  • Forráðamenn Partizan Belgrad stefna hátt og hyggjast ná sæti í Meistaradeild Evrópu og hafa sankað að sér öflugum leikmönnum á undanförnum vikum og mánuðum.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -