Nicolej Krickau, þjálfari Füchse Berlín, viðurkennir að óvissa varðandi framtíð Lasse Andersson hafi truflandi áhrif þó danski landsliðsmaðurinn hafi spilað frábærlega að undanförnu.
Andersson er eitt af stórum nöfnum sem hafði þegar samið við HØJ Elite um að leika með liðinu á næsta tímabili en á hann hafa runnið tvær grímur eftir að HØJ féll óvænt niður í dönsku B-deildina.
„Lasse er fyllilega rólegur yfir þessu, þetta veldur engum óróleika. Það hafa allir séð hversu vel Lasse hefur spilað í undanförnum leikjum. Við þurfum auðvitað á hverri einustu prósentu af einbeitingu að halda þegar kemur að frammistöðu okkar í síðustu leikjum tímabilsins og þetta truflar auðvitað einbeitingu hans,“ sagði Krickau í samtali við Sport Bild.
Andersson vill flytja aftur heim til Danmerkur af persónulegum ástæðum en hugnast ekki mjög að spila í B-deildinni enda heimsklassa leikmaður sem er að berjast um annað sætið með Füchse í þýsku 1. deildinni og er kominn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu með liðinu.
„Hvernig tökumst við á við þetta í sameiningu svo Lasse sé unnt að halda sínu striki? Auðvitað setur þetta strik í reikninggin hjá honum, hann þarf að íhuga hvað hann gerir. Að halda því fram að þetta skipti hann engu máli væri ansi barnalegt,“ bætti þjálfarinn við.



