- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Eva Lind verður áfram á Selfossi

- Auglýsing -

Eva Lind Tyrfingsdóttir, bráðefnilegur örvhentur hornamaður Selfoss, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Þrátt fyrir að vera einungis 16 ára gömul var hún í stóru hlutverki hjá meistaraflokki Selfoss á liðinni leiktíð.

Eva Lind skoraði 41 mark í 21 leik í Olísdeildinni á leiktíðinni er Selfoss hafnaði í neðsta sæti og féll þar með niður í Grill 66 deildina.


Selfoss stefnir vafalaust strax aftur upp í Olísdeildina á næstu leiktíð og mun hægri hornamaðurinn efnilegi leggja sitt af mörkum til þess.

„Handknattleiksdeildin fagnar þessum nýja samningi og erum við spennt að sjá Evu Lind í vínrauðu áfram næstu árin,“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar Selfoss.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -