- Auglýsing -
Karlalið Aalborg Håndbold sló met í gærkvöldi þegar liðið kjöldró Mors-Thy 40:21 í fyrsta undanúrslitaleik liðanna í Álaborg.
Aldrei áður hefur lið unnið svo stóran sigur, með 19 mörkum, í undanúrslitum úrslitakeppninnar um danska meistaratitilinn.
Aðeins þarf að vinna tvo leiki til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu og því næsta víst að stórlið Aalborg komist þangað á kostnað Mors-Thy, þó vissulega megi vænta meiri mótspyrnu af hálfu liðsins á heimavelli í Nykøbing Mors í öðrum leik liðanna á laugardag.
- Auglýsing -


