Íslendingalið SC Magdeburg getur í kvöld tryggt sér þýska meistaratitilinn þegar það fær SG Flensburg-Handewitt í heimsókn í toppslag 1. deildarinnar. Sigur eða jafntefli nægir Magdeburg til þess að tryggja titilinn.
Fyrir leikinn í kvöld, sem er frestaður leikur úr 30. umferð, er Magdeburg á toppnum með 56 stig og Flensburg í öðru sæti með 49 stig. Hafi Flensburg betur í kvöld á liðið enn veika von um að skáka Magdeburg um titilinn.
Þrír Íslendingar eru á mála hjá Magdeburg, landsliðsmennirnir Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Elvar Örn Jónsson. Ómar Ingi og Gísli Þorgeir geta unnið deildina í þriðja sinn með liðinu og Elvar Örn í fyrsta sinn.
Ómar Ingi í liði umferðarinnar í þriðja sinn
Fyrr í mánuðinum var Ómar Ingi valinn í lið 31. umferðar fyrir stórleik sinn gegn HSV Hamburg. Hann skoraði þá 11 mörk úr jafnmörgum skotum í 41:28 stórsigri. Þar af voru sjö mörk úr vítaköstum.
Er það í þriðja sinn á tímabilinu sem Ómar Ingi er valinn í lið umferðarinnar í þýsku deildinni. Hann var sömuleiðis í liðum 22. og 28. umferðar.



