Johannes Golla, fyrirliði þýska landsliðsins og leikmaður SG Flensburg-Handewitt, gengur til liðs við MT Melsungen í sumar. Samdi Golla við félagið í desember 2024 en kveðst ekki viss hvort hann myndi taka sömu ákvörðun í dag.
Golla hóf meistaraflokksferilinn árið 2015 með Melsungen og útskýrði í samtali við hlaðvarpsþáttinn Hölle Nord, sem Handball World skýrir frá, hvers vegna hann hafi ákveðið að semja að nýju við félagið fyrir einu og hálfu ári síðan.
„Á þeim tíma var þetta í raun eini möguleikinn fyrir okkur. Við vorum hérna [í Flensburg] með tvö mjög ung börn, ég ferðaðist mikið, eiginkona mín var heima og við fengum nánast enga aðstoð þar sem foreldrar okkar búa 750 kílómetra í burtu.
Á þessum tímapunkti sögðum við að ef við viljum koma í veg fyrir að fjölskyldan okkar fari á hliðina verðum við að gera eitthvað og flytja nær foreldrum okkar svo við getum notið aðstoðar þeirra.
En í dag er allt saman töluvert afslappaðra. Börnin okkar eru orðin eldri og við höfum komið okkur betur fyrir í borginni. Auðvitað stöndum við við ákvörðunina en ef ég gæti tekið þessa ákvörðun aftur í dag veit ég ekki hver hún myndi vera,“ sagði Golla.


