- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Egill Oddgeir yfirgefur herbúðir ÍBV

- Auglýsing -

Egill Oddgeir Stefánsson, leikmaður ÍBV, er á förum frá uppeldisfélagi sínu í sumar. Flytur hann frá Vestmannaeyjum og á höfuðborgarsvæðið til þess að hefja nám næsta haust.

Egill Oddgeir er 19 ára örvhent skytta sem lék 16 leiki í Olísdeildinni og einn í úrslitakeppninni á síðasta tímabili og skoraði í þeim tíu mörk.


Vænta má þess að hann finni sér lið á höfuðborgarsvæðinu en ekki liggur fyrir að svo stöddu hvaða lið það verður.

„Egill er uppalinn Vestmannaeyingur og hefur komið í gegnum yngri flokka félagsins áður en hann varð hluti af meistaraflokki. Það hefur verið gaman að fylgjast með honum vaxa og þroskast innan félagsins og leggja sitt af mörkum fyrir ÍBV.

Við erum þakklát fyrir allt það sem hann hefur gefið félaginu í gegnum árin og óskum honum góðs gengis í námi og nýjum verkefnum, bæði innan handboltans og utan. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir ÍBV,“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar ÍBV.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -