- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Haukur verðlaunaður með nýjum samningi

- Auglýsing -

Haukur Þrastarson hefur skrifað undir nýjan samning við Rhein-Neckar Löwen sem gildir til næstu tveggja ára. Hann hefur farið á kostum á sínu fyrsta tímabili í þýsku 1. deildinni.

Auk þess að vera langsamlega stoðsendingahæstur í þýsku deildinni með 177 stoðsendingar, 40 fleiri en næsti maður, er Haukur fimmti markahæsti leikmaður deildarinnar með 190 mörk.


Hefur hann spilað alla leiki Ljónanna á tímabilinu, 31 talsins, og notið sín einkar vel í sterkustu deild heims. Mikil ánægja ríkir með frammistöðu Hauks hjá félaginu og er leikstjórnandinn knái því verðlaunaður með nýjum samningi.

Hann er 25 ára gamall landsliðsmaður sem hefur einnig leikið með Dinamo Búkarest í Rúmeníu og Industria Kielce í Póllandi ásamt Selfossi í heimahögunum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -