Þýska handknattleikssambandið hefur ákveðið að kveða niður kjaftasögur í kringum framtíð Alfreðs Gíslasonar sem þjálfara karlalandsliðsins og semja við hann að nýju. Alfreð hefur skrifað undir nýjan samning sem gildir fram yfir Ólympíuleikana í Los Angeles sumarið 2028.
Fyrri samningur hans átti að renna út að loknu heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í janúar á næsta ári og því voru þýskir miðlar farnir að orða hina ýmsu þjálfara við stöðuna.
Nú er hins vegar ljóst að Alfreð verður áfram við stjórnvölinn næstu þrjú stórmót hið minnsta; HM 2027, EM 2028 og ÓL 2028 komist þýska landsliðið þangað.
Alfreð, sem er 66 ára gamall, hefur verið þjálfari þýska landsliðsins frá því febrúar árið 2020 og hefur unnið til tvennra silfurverðlauna; á ÓL 2024 og EM 2026 í janúar. Í bæði skiptin tapaði Þýskaland í úrslitum fyrir ógnarsterku liði Danmerkur.



