Ales Pajovic, þjálfari SG Flensburg-Handewitt, er nú þrálátlega orðaður við þjálfarastarfið hjá RD Slovan Ljubljana í heimalandi sínu Slóveníu. Hann er hins vegar samningsbundinn Flensburg til sumarsins 2027.
Talið er að Uros Zorman, núverandi þjálfari Slovan, taki við sem þjálfari Industria Kielce í sumar. Holger Glandorf, framkvæmdastjóri Flensburg, ræddi við Sport Bild um framtíð Pajovic og var þar ómyrkur í máli.
„Pajo er með samning til 2027 og þannig er það. Það er ekki nokkur misskilningur hvað það varðar. Við einbeitum okkur að síðustu leikjunum og öðrum verkefnum þessa stundina. Við metum frammistöðuna hans í sumar og sjáum svo hvernig hlutirnir þróast,“ sagði Glandorf við Sport Bild.
Dagur kemur til greina
Í umfjöllun þýska miðilsins kemur fram Pajovic hafi látið það liggja ljóst fyrir að hann hefði áhuga á að líta í kringum þar sem umboðsmaður Pajovic hafi svo að segja sett hann á markaðinn.
„Já, hann kom nú til okkar án umboðsmanns. Þess vegna eru þessir hlutir alltaf svona erfiðir og þess vegna get ég ekki tjáð mig um orðróma, því ég vissi ekki einu sinni að hann væri með umboðsmann,“ sagði Glandorf opinskár.
Fari svo að Pajovic láti af störfum í sumar er nafn Dags Sigurðssonar, þjálfara króatíska karlalandsliðsins, eitt af þeim sem eru á blaði hjá Flensburg samkvæmt Sport Bild.



