Færeyingurinn Óli Mittún, einn eftirsóttasti handboltamaður heims, er orðaður við nýkrýnda Þýskalandsmeistara SC Magdeburg, sem þrír Íslendingar leika með.
Fjöldi félaga hefur áhuga á að krækja í hinni tvítuga Óla, sem er að ljúka sínu fyrsta tímabili með GOG í Danmörku eftir þriggja ára dvöl hjá IK Sävehof í Svíþjóð þar á undan.
Óli er náfrændi Eliasar Ellefsen á Skipagøtu, færeysku stjórstjörnunnar hjá THW Kiel, og gæti leið hans sömuleiðis legið í þýsku 1. deildina þegar fram líða stundir. Bennet Wiegert, þjálfari Magdeburg, var spurður út í orðróminn að Óli sé á leið til félagsins.
„Ég tel hann vera leikmann sem gæti plumað sig vel hjá hvaða þýska 1. deildar liði sem er. Leið hans gæti sannarlega legið til Þýskalands á einhverjum tímapunkti. Hvort það verði hjá SC Magdeburg kemur í ljós,“ sagði Wiegert í samtali við Handball World.


