Spánverjinn Carlos Martin Santos hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs HK Aranäs, sem leikur í sænsku B-deildinni, Allsvenskan. Carlos lét fyrr í mánuðinum af störfum sem þjálfari karlaliðs Selfoss.
Undir hans stjórn hélt Selfoss sér í Olísdeildinni á síðasta tímabili eftir að hafa leikið sem nýliði í deildinni. Carlos var aðstoðarþjálfari karlaliðsins tímabilið 2023/24 og tók svo við liðinu eftir að það féll niður í Grill 66 deildina.
Á þarsíðasta tímabili vann Selfoss umspil um sæti í Olísdeildinni og verður sem fyrr segir áfram á meðal þeirra bestu á næsta tímabili. Áður hafði hann þjálfað Hörð á Ísafirði um árabil og kom liðinu meðal annars upp í Olísdeildina vorið 2021.
Aranäs hafnaði í fimmta sæti sænsku B-deildarinnar á síðasta tímabili og missti þannig naumlega af umspilssæti um að komast upp í úrvalsdeildina. Vænta má þess að Carlos eigi að koma liðinu aftur á meðal þeirra bestu.


