- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Verður ungverska stórliðið lagt niður?

- Auglýsing -

Ungverska stórveldið Ferencváros, stundum kallað FTC, á í miklum fjárhagskröggum um þessar mundir og íhugar félagið því að draga karlaliðið úr keppni í efstu deild Ungverjalands. Ekki nóg með það yrði karlaliðið ekki sent til keppni í neðri deildum heldur lagt niður.

FTC hafnaði í fjórða sæti deildarinnar á nýliðnu tímabili og lék í Evrópudeildinni. Þrátt fyrir að standast stórliðum Veszprém og Pick Szeged ekki snúning í deildinni á undanförnum árum er Ferencváros stærsta íþróttafélag Ungverjalands.


Ungverski miðillinn 24.hu greinir frá því að leikmönnum hafi verið tilkynnt um erfiða fjárhagsstöðu hjá félaginu og þeim boðið að taka á sig allverulega launalækkun, sem myndi fela í sér að allir leikmenn fengju borgaðar 300.000 ungverskar fórintur í mánaðarlaun.

Sú upphæð jafngildir rúmlega 122.000 íslenskum krónum. Taki þeir ekki þessa launalækkun á sig verði ekki mögulegt að senda FTC til keppni í efstu deild karla á næsta tímabili.

Ferencváros hyggst leggja aukna áherslu á karlalið félagsins í knattspyrnu og kvennalið sitt í handknattleik, þó ekki sé loku fyrir það skotið að skera þurfi niður hjá þeim líka.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -