Þýska félagið Füchse Berlín hefur samið við austurríska leikmanninn Clemens Möstl um að leika með liðinu næstu tvö ár. Möstl er þar með kominn í þýsku 1. deildina eins og eldri bróðir sinn, Constantin Möstl, sem er landsliðsmarkvörður Austurríkis og leikmaður TBV Lemgo-Lippe.
Clemens er tvítug vinstri skytta sem kemur frá HC Linz AG í heimalandinu en Constantin er 26 ára. Clemens verður fyrst um sinn lánaður til 1. VfL Potsdam sem leikur í þýsku B-deildinni.
Því mun hann ekki mæta eldri bróður sínum fyrst um sinn, nema Lemgo og Potsdam dragist saman í þýsku bikarkeppninni á næsta tímabili.
Þykir Clemens einn mest spennandi leikmaður Austurríkis og skoraði til að mynda 189 mörk fyrir Linz í austurrísku 1. deildinni á síðasta tímabili.



