- Auglýsing -
- Danski landsliðsmaðurinn Thomas Arnoldsen er í kapphlaupi við tímann að ná fyrsta úrslitaleik Aalborg Håndbold og Skanderborg á sunnudaginn. Arnoldsen meiddist á öxl í síðari undanúrslitaleiknum við Mors-Thy á dögunum.
- Handknattleikskonan Christina Pedersen, sem lenti svo upp á kant við samherja sína hjá Viborg í fyrrasumar að þeir neituðu að æfa með henni, verður ekki áfram hjá norska liðinu Larvik. Henni vegnaði vel hjá liðinu í vetur en virðist ekki vera inni í framtíðaráætlunum þjálfara Larvik-liðsins.
- Norski landsliðsmaðurinn Magnus Rød Abelvik hefur framlengt samning sinn við ungverska liðið Pick Szeged til eins árs. Abelvik kom til félagsins fyrir tveimur árum og varð bikarmeistari á síðasta ári.
- Auglýsing -


