- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Blær tekur slaginn áfram með Leipzig

- Auglýsing -

Blær Hinriksson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við þýska félagið DHfK Leipzig og tekur því slaginn áfram með liðinu, væntanlega í þýsku B-deildinni.

Leipzig er á botni þýsku 1. deildarinnar með 13 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti þegar einungis tvær umferðir eru eftir og blasir fallið því við.


Þrátt fyrir það tilkynnti Leipzig í dag að Blær, sem er 24 ára leikstjórnandi og vinstri skytta, hafi ásamt tveimur leikmönnum til viðbótar ákveðið að halda kyrru fyrir hjá félaginu. Hinir tveir eru Serbinn Luka Rogan og Tékkinn Matej Klíma.

Ekkert verður því af því að Blær haldi til Danmerkur eins og danskir miðlar veltu upp fyrr í vikunni, þar sem hann var til að mynda orðaður við Bjerringbro/Silkeborg í úrvalsdeildinni þar í landi.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -