Maik Machulla, þjálfari Rhein-Neckar Löwen, hefur greint frá því að félagið hafi gjarna viljað semja við Hauk Þrastarson til lengri tíma en raunin varð. Selfyssingurinn hefur farið á kostum á sínu fyrsta tímabili í þýsku 1. deildinni.
Haukur skrifaði í síðustu viku undir nýjan tveggja ára samning við Ljónin, til sumarsins 2028, þar sem hann vill halda möguleikum sínum opnum í náinni framtíð.
Haukur verðlaunaður með nýjum samningi
„Við vildum mjög gjarna skrifa undir langtímasamning við hann. Þegar leikmaður sem býr yfir þessum hæfileikum segir við mig að hann vilji halda öllum dyrum opnum og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér veiti ég því fullan skilning. Þannig virkar handboltaheimurinn í dag,“ hefur danski miðillinn Europamester eftir Machulla.
Haukur er 25 ára gamall og hefur á ferlinum tvívegis slitið krossband í hné en í bæði skiptin komið tvíefldur til baka. Hann er stoðsendingahæstur í þýsku 1. deildinni og einnig fjórði markahæstur.



