- Auglýsing -
Erla Sif Leósdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna frá uppeldisfélagi sínu Val og skrifar undir tveggja ára samning í Garðabænum.
Erla Sif er 18 ára vinstri hornamaður sem lék 16 leiki með Val 2 í Grill 66 deild kvenna á síðasta tímabili og skoraði í þeim tíu mörk.
„Erla er vinstri hornamaður með frábæran úlnlið og skemmtilegur slúttari sem kemur til með að styrkja okkar unga og flotta hóp mikið.
Við erum virkilega ánægð að fá Erlu til félagsins og erum viss um að hún mun stimpla sig rækilega inn næstu tvö tímabil,“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar Stjörnunnar.
- Auglýsing -


