Hákon Daði Styrmisson er genginn til liðs við Aftureldingu. Kemur hann á frjálsri sölu eftir hálfs árs dvöl hjá ÍBV og skrifar undir þriggja ára samning í Mosfellsbænum.
Hákon Daði er 29 ára gamall vinstri hornamaður sem er mikill markaskorari. Hann skoraði 41 mark í sex leikjum fyrir ÍBV á síðari hluta síðasta tímabils eftir að hafa komið frá Eintracht Hagen í Þýskalandi um áramótin.
Hákon Daði hefur einnig leikið með VfL Gummersbach í Þýskalandi og Haukum hér á landi ásamt því að hafa spilað með A-landsliðinu um skeið, meðal annars á HM 2023.
„Við erum gífurlega stolt að Hákon hafi ákveðið að semja við Aftureldingu og erum spennt fyrir því að sjá hann í rauðu treyjunni á næsta tímabili. Velkominn Hákon! Áfram Afturelding!“ sagði í tilkynningu handknattleiksdeildar Aftureldingar.


