Norski landsliðsmaðurinn Thomas Solstad gengur til liðs við danska B-deildar liðið HØJ Elite frá þýska 1. deildar liðinu TSV Hannover-Burgdorf í sumar. Bætist hann þar með í hóp dönsku landsliðsmannanna Lasse Andersson og Jannick Green sem koma einnig í sumar.
Óvænt fall HØJ niður í B-deild eftir tap fyrir KIF Kolding í umspili um sæti í úrvalsdeildinni skapaði þá þegar mikla óvissu enda metnaðarfullt félagið búið að semja við afskaplega öfluga leikmenn áður en það varð ljóst.
Eftir að Andersson og Green ákváðu að halda sig við ákvörðunina að fara til félagsins þrátt fyrir fallið virðist sem öldurnar hafi lægt. Solstad er 29 ára línumaður og mun freista þess að hjálpa HØJ við að ná markmiðum sínum um að komast strax aftur upp í úrvalsdeildina.
Útlit er fyrir að HØJ tefli fram einhverju sterkasta B-deildar liði í manna minnum þar sem fyrir eru leikmenn á borð við sænska landsliðsmanninn Hampus Wanne og landi hans stórefnilegi Axel Månsson kemur að óbreyttu frá IFK Kristianstad í sumar.


