- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handknattleiksdeild Stjörnunnar stendur í ströngu

- Auglýsing -

Í nógu er að snúast hjá handknattleiksdeild Stjörnunnar þessa dagana þar sem undirbúningur fyrir næsta tímabil hjá karla- og kvennaliðunum er í fullum gangi. Viktor Breki Róbertsson hefur nú skrifað undir sinn fyrsta samning við félagið.

Viktor Breki er 17 ára hornamaður sem lék sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk Stjörnunnar á síðasta tímabili. Spilaði hann tvo leiki í Olísdeildinni og einn í umspili um sæti í deildinni.


Samningur Viktors Breka, sem verður 18 ára í sumar, er til næstu tveggja ára. Í tilkynningu handknattleiksdeildar Stjörnunnar kemur fram að hann sé uppalinn, eldfljótur hornamaður sem er góður í að afgreiða færin sín.

„Viktor á framtíðina fyrir sér og við hlökkum mikið til að fylgjast með honum blómstra í bláu treyjunni,“ sagði í tilkynningunni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -