- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Perla Ruth tekur slaginn í Grill deildinni

- Auglýsing -

Perla Ruth Albertsdóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við handknattleiksdeild Selfoss og er því nú samningsbundin félaginu til sumarsins 2029.

Perla Ruth er 29 ára gömul og leikur sem vinstri hornamaður. Hún er þaulreynd landsliðskona sem hefur einnig spilað með Fram hér á landi.


Perla Ruth sneri aftur í lið Selfoss undir lok síðasta tímabils eftir barnsburð. Selfoss hafnaði í neðsta sæti Olísdeildarinnar og leikur því í Grill 66 deildinni á næsta tímabili.

Fyrirmynd fyrir yngri iðkendur

Undanfarin ár hafði hún verið lykilmaður hjá íslenska A-landsliðinu en lætur það ekki aftra sér frá því að spila í næstefstu deild. Perla Ruth eignaðist sitt annað barn á síðasta ári.

„Perla er, eins og allir Selfyssingar vita ein besta handknattleikskona landsins. Hún var hægt og rólega að koma til baka eftir barnsburð á síðasta tímabili og verður því mikil styrking fyrir stelpurnar að fá Perlu á fullri ferð eftir sumarið.


Það er mjög mikilvægt fyrir okkur Selfyssinga að Perla sé áfram hjá okkur því hún er mikil fyrirmynd fyrir yngri iðkendur sem og liðsfélaga með faglegri nálgun sinni gagnvart íþróttinni,“ sagði meðal annars í fréttatilkynningu frá handknattleiksdeild Selfoss.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -