Arnór Atlason, þjálfari TTH Holstebro og aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins, viðurkennir að vera svekktur að Holstebro hafi ekki tekist ætlunarverk sitt um að komast í undanúrslit úrslitakeppninnar um danska meistaratitilinn.
Holstebro hafnaði í fjórða sæti dönsku úrvalsdeildarinnar eftir frábært gengi í síðustu umferðum hennar. Í átta liða úrslitum var liðið í riðli með Skanderborg AGF, Mors-Thy og Bjerringbro/Silkeborg þar sem Skanderborg og Mors-Thy komust að lokum í undanúrslitin.
„Það eru enn svolítil vonbrigði sem fylgja því að hafa ekki komist áfram í undanúrslit. Það er alveg ljóst að ef þú kemst áfram í úrslitakeppnina og tekur stig með þér úr deildinni vonastu auðvitað til þess að komast áfram.
Við ættum samt líka að muna að vera stoltir og ánægðir með árangurinn. Þegar aðeins meiri tími er liðinn er ég líka viss um að það verði sú tilfinning sem tekur meira pláss en vonbrigðin að spila ekki í leikjunum um verðlaunin,“ sagði Arnór í viðtali sem birtist á samfélagsmiðlum Holstebro.



