- Auglýsing -
- Þýski landsliðsmaðurinn Renars Uscins hefur samið við frönsku meistarana Paris Saint-Germain frá og með næstu leiktíð. Uscins, sem er 24 ára gamall, hefur leikið með Hannover–Burgdorf í fjögur ár og á þeim tíma fest sig í sessi sem einn fremsti handknattleiksmaður Þýskalands.
- Norska landsliðskonan Henny Reistad skoraði 19 mörk í 20 skotum fyrir Esbjerg í öðrum úrslitaleik Esbjerg og Odense Håndbold um danska meistaratitilinn í handknattleik kvenna í gær. Markasúpa Reistad nægði Esbjerg ekki til sigurs. Odense vann, 33:30. Liðin mætast í oddaleik um danska meistaratitilinn í Esbjerg á þriðjudaginn.
- Aalborg Håndbold og Skanderborg AGF mætast í dag í fyrsta sinn um danska meistaratitilinn í karlaflokki. Kristján Örn Kristjánsson, Donni, leikmaður Skanderborg AGF verður í eldlínunni í leiknum.
- Áfram streyma leikmenn til danska liðsins HØJ þrátt fyrir fall úr úrvalsdeildinni. Nýjasta viðbótin er Oskar Andreasson, 21 árs gamall línumaður, sem síðast lék með Guif í Eskilstuna. Landi hans Axel Månsson frá nýkrýndum meisturum IFK Kristianstad á eftir að ákveða hvort hann gangi til liðs við HØJ eða ekki. Mänsson samdi við HØJ í vetur en á hann munu hafa runnið tvær grímur er liðinu lánaðist ekki að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni.
- Mjög skiptar skoðanir eru á meðal Dana um það hvort Jyske Bank Boxen í Herning eigi að vera keppnisstaður danska karlalandsliðsins á HM 2031 og EM 2032 eða Royal Arena í Kaupmannahöfn. Mjög hart er sótt að danska handknattleikssambandinu að gefa Herning upp á bátinn og færa bækistöðvar danska landsliðsins til Royal Arena.
- Jyske Bank Boxen í Herning hefur reynst dönsku landsliðunum afar vel á síðustu 15 árum enda mikill áhugi fyrir handbolta á Jótlandi. „Fótboltinn á að vera á Parken, handboltinn í Boxen,“ segir einn danskra handboltaáhugamanna sem danskir fjölmiðlar vitna til. Honum er heitt í hamsi vegna málsins. Fleiri taka undir með honum.
- Auglýsing -


