- Auglýsing -
- Auglýsing -

Meistaradeild: Stórleikir á hverju strái

Leikmenn Rostov-Don fagnar eftir sigurleik. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Sex leikir verða á dagskrá í Meistaradeild kvenna um helgina og þar sem meðal annars sú óvenjulega staða kemur upp að þýska liðið Dortmund og ungverska liðið Györ spila báða leiki sína um helgina í Ungverjalandi. Fyrri viðureignin var í gærkvöld. Afar sjaldan gefa lið frá sér heimaleikjaréttinn í leikjum deildarinnar en vegna kórónuveirunnar varð það niðurstaða forráðamanna félaganna að fara þá leið að leika báða leikina á heimavelli Györi.

Í hinum leik B-riðils mun topplið riðilsins CSKA freista þess að halda sigurgöngu sinni áfram þegar liðið mætir danska liðinu Odense Håndbold.

Í A-riðli verða hins vegar þrír leikir þar sem CSM Búkaresti freistar þess að auka forystu sína í riðlinum með sigri á Krim á sama tíma og þýska liðið Bietigheim vonast til að ná í sinn fyrsta sigur á þessari leiktíð gegn FTC í Ungverjalandi. Í þriðja leik riðilsins tekur svo Rostov-Don á móti Team Esbjerg.

Leikir helgarinnar

A-riðill

FTC – Bietigheim | Laugardagur 7.nóvember kl. 15.00

  • Ungverska liðið er loksins búið að ná öllum sínum leikmönnum tilbaka eftir að hafa verið án lykilleikmanna allan október.
  • Bietigheim er eina liðið í riðlinum sem hefur ekki náð í stig til þessa. Ef þær tapa þessum leik þá jafna þær sinn versta árangur í Meistaradeildinni sem er átta leikir án sigurs.
  • Ef FTC tekst að sigra leikinn þá verða þær sjötta liðið í Meistaradeildinni til þess að sigra 90 leiki.

Rostov-Don – Esbjerg | Laugardagur 7.nóvember kl. 15.00

  • Rússneska liðið er taplaust á þessari leiktíð en liðið hefur unnið þrjá leiki og gert eitt jafntefli sem setur þær í þriðja sæti í riðlinum, einu stigi á eftir toppliðinu CSM.
  • Esbjerg er í lengstu taphrinu félagsins í Evrópukeppni en liðið hefur ekki unnið í síðustu fjórum leikjum.
  • Rostov hefur unnið 3 af síðustu 4 leikjum þessara liða til þessa.

Krim – CSM Búkaresti | Laugardagur 7.nóvember kl. 17.00

  • CSM eru á toppi riðilsins en liðið hefur sigrað í fjórum leikjum og gert eitt jafntefli. Með sigri að þessu sinni hafa þær unnið þrjá leiki í röð.
  • Stórskyttan Cristina Neagu verður ekki með CSM í þessum leik. Hún á við smávægileg hnémeiðsli að stríða.
  • Barbara Lazovic hægri skytta rúmenska liðsins er næst markahæsti leikmaður liðsins með 20 mörk. Hún mætir fyrrverandi liðsfélögum en hún spilaði með Krim í sex ár.

B-riðill

B.Dortmund – Györ | Föstudagur 6.nóvember kl.17.30, 24:34
Györ – B.Dortmund | Sunnudagur 8.nóvember kl. 13.00

  • Györ er í öðru sæti riðilsins með átta stig jafnmörg stig og Odense og Brest en hefur betri markatölu.
  • Dortmund er aðeins með 2 stig eftir fimm umferðir.
  • Vörn þýska liðsins er sú versta í riðlinum en liðið hefur fengið á sig 155 mörk í fimm leikjum til þessa.
  • Veronica Kristiansen leikmaður Györ er þriðja markahæst í Meistaradeild kvenna. Hún hefur skorað 30 mörk í fimm leikjum.

CSKA – Odense | Sunnudagur 8.nóvember kl. 13.00

  • Eftir fjóra sigurleiki í röð er CSKA á toppi B-riðils með níu stig eftir fimm leiki.
  • Odense missti af tækifæri til að fara í toppsæti  riðilsins þegar þær töpuðu  í síðustu umferð fyrir Brest en þær sitja nú í þriðja sæti riðilsins með átta stig.
  • Elena Mikhaylichenko markahæsti leikmaður CSKA leikur ekki meira í Meistaradeild kvenna á þessari leiktíð þar sem hún sleit krossband í síðasta leik liðsins eins og handbolti.is sagði frá í gærmorgun.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -