- Auglýsing -
- Auglýsing -

EM2020: Vafasamt að aukin reynsla dugi til

Dejana Milosavljevic t.h. á eftir að glíma við leikmenn ungverska landsliðsins á EM. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Átta dagar eru þangað til flautað verður til leiks á Evrópumeistaramóti kvenna í handknattleik í Danmörku. Handbolti.is kynnir liðin 16 til leiks hvert á fætur öðru á næstu dögum allt til 3. desember. Nú er röðin komin að Krótaíu. Tengil inn á fyrri kynningar er m.a. að finna neðst í þessari grein.

Árangur króatíska liðsins á síðustu tveimur Evrópumeistaramótum hefur ekki verið uppá marga fiska. Liðið vann ekki leik og skoraði alls 59 mörkum færra en það fékk á sig í sex leikjum.

Að þessu sinni mæta Króatar til leiks með meiri reynslu í farteskinu sem og að það virðist vera hægt og bítandi að nálgast bestu liðin. Hvort að það dugi til þess að komast uppúr riðlakeppninni verður tíminn að leiða í ljós.

Sostaric með 17 að heiman

Neven Sostaric stýrir króatíska liðinu á öðru stórmótinu í röð. Hann valdi 17 leikmenn sem spila í heimalandinu, fimm sem leika í Frakklandi, Rússlandi og Ungverjalandi. Mikið mun mæða á leikstjórnandanum Dejana Milosavljevic en hún hefur spilað gríðarlega vel það sem af er í Meistaradeild kvenna með liði sínu, Podravka. Milosavljevic hefur skorað 42 mörk í sex leikjum Podravka.

Lykilmaður - Dejana Milosavljevic
Þetta verður annað EM sem 
þessi 26 ára gamli leikstjórnandi 
tekur þátt í en hún er líkleg 
til þess að vera ein af stjörnum 
króatíska liðsins sér í lagi ef 
hún nær að sýna sama stöðugleika 
sem hún hefur náð að sýna með 
félagsliði sínu í vetur. 
Á síðasta móti lék Milosavljevic
aðeins 41 mínútu og skoraði eitt 
mark. Hún hefur nú fengið stærra 
hlutverk í liðinu og það mun koma 
í hennar verkahring að stýra 
sóknarleik liðsins.

Mun liðið komast í milliriðla?

Þetta verður níunda Evrópumeistaramótið í röð hjá króatíska liðinu en liðið hefur ekki náð að komast í milliriðlakeppnina frá árinu 2010. Þrátt fyrir vonbrigði á nokkrum mótum þá hefur liðið gengið í gegnum uppbyggingu á undanförnum árum þar sem nokkrir af lykilleikmönnum liðsins hafa horfið á braut og yngri leikmenn hafa tekið við. Hvort að þessir leikmenn séu nú tilbúnir til þess að koma liðinu uppí milliriðlakeppnina verður að koma í ljós en það er ljóst að verkefnið verður erfitt.

Fyrri árangur liðsins:
Þátttaka á Evrópumeistaramótum: 11
6. sæti 2008
Náð í milliriðla 2006, 2008 og 2010
Heimsmeistaramót: 6
6. sæti 1997
Ólympíuleikar
7. sæti 2012

Grannaslagur gæti skipt máli

Liðið er í riðli með heimsmeisturum Hollands, Ungverjalandi og þær þurfa að ná að töfra fram eitthvað óvænt á móti þessum liðum ef þær ætla ekki að fara heim að lokinni riðlakeppninni á þessu móti og líklega verður lokaleikur riðilsins þegar að liðið mætir Serbíu úrslitaleikur um það hvort liðið fari áfram í milliriðla.

Leikir Króatíu í C-riðli:
4.12. Ungverjal. - Króatía kl. 17.15
6.12. Króatía - Holland, kl. 17.15
8.12. Serbía - Króatía, kl. 17.15.
RÚV sýnir flesta leiki EM.

Fyrri kynningar, smellið á þjóðarheiti: Pólland.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -