Evrópumeistaramóti kvenna í handknattleik hefst í Danmörku á morgun. Handbolti.is kynnir liðin 16 til leiks hvert á fætur öðru, tvö á dag, allt þangað til á morgun þegar sagt verður frá tveimur þeim síðustu. Nú er röðin komin að landsliði Rúmeníu og síðdegis kemur röðin að landsliði Rússlands. Á morgun verður sagt frá landsliðum Evrópumeistara Frakka og gestgjafanna. Tengil inn á fyrri kynningar er að finna neðst í þessari grein.
Síðustu tveir verðlaunapeningar sem rúmenska liðið hefur unnið til hafa einmitt komið þegar að EM hefur verið haldið á danskri grundu og því verður athyglisvert að sjá hvort að það verði einnig raunin að þessu sinni. Í bæði þessi skipti varð Cristina Neagu markahæsti leikmaður rúmenska liðsins og alveg ljóst að liðið þarf á hennar kröftum að halda. Hún ein og sér dugir ekki og liðið þarf að fá framlag frá fleiri leikmönnum til þess að ná árangri. Handknattleikur byggist fyrst og fremst á liðsheild fremur en einstaklings framtaki, ekki síst þegar komið er á efsta þrep íþróttarinnar.
Verða breytingar? Með nýjum þjálfara, Bogdan Burcea, við stýrið er ljóst rúmenska landsliðið mun leggja áherslu á öflugan varnarleik en hvort að það dugi til verðlauna verður að koma í ljós.
Allra augu beinast að Neagu
Evrópumeistaramótið 2018 var sveiflukennt fyrir stórskyttuna Cristina Neagu. Hún spilaði vel framan af móti en varð fyrir hnémeiðslum í leik gegn Ungverjum í milliriðlakeppninni og þar með urðu vonir Rúmena um verðlaun að engu.
Neagu sem er 32 ára er kominn á fullt á nýjan leik og hefur átt gott tímabil í Meistaradeild kvenna á þessari leiktíð þar sem hún hefur skorað 42 mörk í fimm leikjum. Neagu hefur þó ekki átt sjö dagana sæla í haust en hún greinist með Covid-19 í október auk þess að hafa átt í hnémeiðslum á undanförnum vikum. Það er ljóst að hún þarf að vera í topp standi ef Rúmenar eiga að vinna til verðlauna.
Fyrri árangur: Evrópumeistaramót 3. sæti 2010 4. sæti 2000, 2018 Heimsmeistaramót 1. sæti 1962 2. sæti 1973, 2005 3. sæti 2015 Ólympíuleikar 4. sæti 1976
Mikil pressa á Burcea
Það voru margir í Rúmeníu sem töldu Bogdan Burcea vera framtíðar landsliðsþjálfara þegar hann tók við sem aðstoðarþjálfari árið 2015. Burcea sem er mjög varnarsinnaður þjálfari leiddi félagslið sitt SCM Craiova til sigurs í Evrópubikanum árið 2018. Í þeirri keppni vann SCM lið sem voru fyrirfram talin mun sterkari.
Rúmenska liðið hefur á að skipa reynslumiklum leikmönnum sem hafa nú þegar náð að aðlaga sig að leikstíl Burcea. Það er mikil pressa á honum en hann hefur aldrei áður staðið í stafni sem aðalþjálfari landsliðs.