Önnur umferð Meistaradeildar kvenna heldur áfram í dag en þá verða sex leikir á dagskrá. Leikur umferðarinnar er viðureign Bietigheim og FTC í A-riðli en bæði lið unnu sína leiki í 1. umferð fyrir viku. Á meðal annarra athyglisverðra leikja í dag er leikur Brest og CSM Búkaresti annars vegar og Rapid Búkarest og Metz hins vegar.
Leikir dagsins
A-riðill:
Bietigheim – FTC | kl. 12.00 | Beint á EHFTV
- Þýska liðið var með besta sóknarleikinn í 1.umferð en það skoraði 46 mörk gegn Banik Most en það er næst flest mörk sem lið hefur skorað í einum leik í sögu Meistaradeildarinnar.
- Stærsti sigur Bietigheim fram að því kom einmitt gegn FTC tímabilið 2020/2021, 35-24.
- Bietigheim er á mikilli sigurgöngu í Evrópukeppninni en liðið er taplaust í síðustu 13 leikjum.
- Melinda Szikora, markvörður þýska liðsins átti góðan leik gegn Banik Most um síðustu helgi. Hún var með 35,2% hlutfalls markvörslu. Szikora lék áður með FTC á árunum 2013-2019 og varð bæði ungverskur meistari og bikarmeistari.
- Þýska liðið var með bestu skotnýtinguna í 1. umferð, 76,7% skotnýtingu en FTC var í 10.sæti með 57,4%.
- Þessi lið hafa mæst sex sinnum áður í Evrópukeppni á síðustu fimm árum. Bietigheim hefur unnið tvisvar sinnum en FTC fjórum sinnum.
Krim – Vipers | kl.12.00 | Beint á EHFTV
- Eftir að hafa tapað gegn CSM í 1. umferð mun Krim reyna að forðast að byrja tímabilið á tveimur ósigrum í annað sinn á sjö árum í Meistaradeildinni.
- Ríkjandi meistari, Vipers, byrjaði tímabilið af miklum krafti, vann Brest örugglega, 31-24.
- Norska liðið hefur nú sigrað í sjö leikjum í röð í Meistaradeildinni og er það lengsta sigurhrina liðsins í sögu keppninnar.
- Krim hefur hins vegar tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum í Meistaradeildinni.
- Vipers hefur tak á Krim þegar kemur að innbyrðisleikjum félaganna í Evrópukeppnum en þær norsku hafa unnið níu af tíu leikjum liðanna.
Brest – CSM Búkaresti | kl.14.00 | Beint á EHFTV
- CSM getur jafnað sína bestu byrjun í Meistaradeildinni frá tímabilinu 2017/18 þegar liðið vann fyrstu tvo leikina í riðlakeppninni. Það tímabil náði CSM alla leið í Final4.
- Franska liðið hefur aðeins tapað tveimur leikjum af síðustu 24 á heimavelli í Meistaradeildinni
- Kalidiatou Niakate, sem gekk til liðs við CSM í sumar, mun mæta sínum gömlu félögum. Hún lék með Brest á árunum 2019-2022.
- CSM tapaði báðum leikjunum gegn Brest á síðustu leiktíð.
Odense – Banik Most | kl.14.00 | Beint EHFTV
- Banik Most hóf tímabilið í Meistaradeildinni á 23 marka tapi fyrir Bietigheim. Það er fjórði stærsti ósigurinn í sögu Meistaradeildarinnar.
- Á síðustu fjórum tímabilum í Meistaradeildinni hefur Odense aldrei tapað tveimur fyrstu leikjum sínum.
- Liðin eru í 14. og 15. sæti af sextán liðum þegar kemur að skoruðum mörkum í 1. umferðinni. Odense er þó með aðeins betri árangur en þær voru með 54,8% skotnýtingu en Banik Most var með 46,9%.
B-riðill:
Rapid Búkaresti – Metz | kl 12.00 | Beint á EHFTV
- Bæði lið hófu Meistaradeildina á þessu tímabili með sigri. Rapid tók bæði stigin gegn Zagreb en Metz fór nokkuð auðveldlega með nýliðana í Storhamar.
- Þetta er í fyrsta skipti sem lið félaganna mæstast í Evrópukeppni.
- Rapid hefur haft nægan tíma til að undirbúa sig fyrir þennan leik þar sem að ekkert var leikið í rúmensku deildinni í liðinni viku.
- Metz er með næst yngsta leikamannahópinn á þessari leiktíð en ætlar sér engu að síður langt.
Györ – Kastamonu | kl 14.00 | Beint á EHFTV
- Tyrkneska liðið tekur þátt í Meistaradeildinni í annað sinn en það er enn án sigurs og það eru miklar líkur að sextándi tapleikurinn bætist við í dag.
- Um síðustu helgi tapaði tyrkneska liðið með 13 marka mun, 27-40, fyrir Buducnost.
- Ungverska liðið hóf tímabilið á því að vinna Esbjerg naumlega þar sem að mestu munaði um góða markvörslu Söndru Toft.
Í gær vann Esbjerg lið Buducnost, 28:23, í Podgorica og Storhamar vann stórsigur á Lokomotiv Zagreb, 37:13, í Hamri.
handbolti.is nýtur ekki opinbers rekstrarstuðnings.