Þriðju umferð Meistaradeildar kvenna lýkur í dag með þremur leikjum. CSM og Bietigheim mætast í Búkarest. Bæð lið eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar. Það verður svo boðið uppá skandinavískan slag af bestu gerð þegar að Esbjerg tekur á móti Storhamar á vestur Jótlandi. Axel Stefánsson er annar þjálfari Storhamar.
Leikir dagsins
A-riðill:
CSM – Bietigheim |kl.14.00 | Beint á EHFTV
- CSM hefur aldrei í sögu Meistaradeildarinnar unnið þrjá leiki í röð en á möguleika á því í dag.
- Bietigheim munu ná að jafna sína lengstu sigurgöngu í Meistaradeildinni takist liðinu að vinna í Rúmeníu.
- Nái þýska liðið að vinna verður það tíundi sigurleikur liðsins í Meistaradeildinni og verður um leið þriðja þýska liðið til þess að ná þeim áfanga.
- Bietigheim er nú ósigrað í 58 leikjum í öllum mótum en liðið tapaði síðast í mars 2021.
B-riðill:
Kastamonu – Rapid Búkaresti | kl. 12.00 | Beint á EHFTV
- Tapi Kastamonu þessum leik verður það 17. tapleikurinn. Um leið setur liðið met. Ekkert lið hefur tapað leikjum jafn oft í Meistaradeildinni. Vafasamt að metinu verði haldið á lofti á sögusafni félagsins.
- Yaren Berfe Göker vonast til þess að geta spilað þennan leik en hún fékk höfuðhögg í leiknum við Györ fyrir viku.
- Rapid gerði vel um síðustu helgi og náði jafntefli við Metz eftir að hafa lent fimm mörkum undir.
- Þetta er í fyrsta sinn sem liðin mætast í Evrópukeppni.
Esbjerg – Storhamar | kl. 14.00 | Beint á EHFTV
- Þessi lið mættust síðast í riðlakeppni Evrópubikarsins árið 2019.
- Eftir að hafa tapað í fyrstu umferð náði Esbjerg í sinn fyrsta sigur gegn Buducnost á útivelli um síðustu helgi.
- Storhamar átti góðan leik gegn Lokomotiva á heimavelli um síðustu helgi og vann með 24 marka mun en það er stærsti sigur í sögu Meistaradeildarinnar.
Úrslit leikja í gær:
FTC – Brest 20 – 21.
Banik most – Krim 29 – 42.
Györ – Metz 24 – 28.
Vipers Kristiansand – Odense 34 – 27.
Lokomotiv Zagreb – Budiconost 24 – 25.
Öllum leikjum helgarinnar verða gerð skil á handbolta.is í kvöld eða í fyrramálið.
handbolti.is nýtur ekki opinbers rekstrarstuðnings.