Þriðja umferð Meistaradeildar kvenna í handknattleik fór fram um helgina þar sem að stóru tíðindin voru án efa sigur Metz á ungverska liðinu Györ, 28-24. Þetta var fyrsta tap Györ á heimavelli í sjö ár, eða frá október 2015.
Ríkjandi meistarar í Vipers sigruðu Odense á heimavelli og eru með fullt hús í A-riðli.
Mesta spennan var í leik CSM Búkaresti og Bietigheim þar sem að heimakonur í CSM náðu að jafna metin, 28-28, þegar aðeins fimm sekúndur voru til leiksloka. Þýska liðið er þar með enn ósigrað í 59 mótsleikjum í röð.
Úrslit helgarinnar
A-riðill:
CSM Búkaresti 28 – 28 Bietigheim (13 – 16)
- Eftir að hafa verið fjórum mörkum undir náði rúmenska liðið að snúa leiknum sér í vil með því að skora sjö mörk gegn einu í upphafi seinni hálfleiks.
- Cristina Neagu var markahæst í liði CSM með átta mörk.
- 58 leikja sigurgöngu Bietigheim var stöðvuð í þessum leik en engu að síður eru liðið enn ósigrað í 59 leikjum í öllum mótum frá mars 2021.
- CSM tapaði fjórum leikum í Meistaradeildinni með einu marki á síðustu leiktíð en lukkan hefur snúist á sveif með liðinu á þessari leiktíð. Eftir þrjár viðureignir er liðið taplaust.
- Bietigheim mistókst að jafna metið sitt yfir lengstu sigurgöngu í Meistaradeildinni.
Vipers 34 – 27 Odense (16 – 10)
- Þrjú mörk frá línumanninum Ana Debelic og tvö frá Ragnhild Valle Dahl hjálpuðu Vipers að enda fyrri hálfleikinn með 6-2 kafla sem var vendipunktur leiksins.
- Norska liðið hefur unnið níu leiki í röð í Meistaradeildinni. Það er félagsmet. Fyrra metið var sex leikir í röð.
- Þetta er versta byrjun Odense í Meistaradeildinni á þeim fjórum leiktíðum sem liðið hefur tekið þátt í henni. Odense hefur tapað tveimur leikjum af þremur.
- Ragnhild Valle Dahl var markahæst í liði Vipers með sjö mörk.
- Þetta var stærsti sigur Vipers á dönsku liði en fyrra met var fimm marka sigur, einnig gegn Odense.
Banik Most 29 – 42 Krim (13 – 21)
- Krim náði 10-2 kafla í fyrri hálfleik og það gaf tóninn fyrir það sem eftir kom. Jovanka Radicevic, Barbara Lazovic og Daria Dmitrieva skoruðu 10 af 13 mörkum Krim á fyrstu 18 mínútum leiksins.
- Radicevic skoraði 6 mörk í leiknum og er nú komin með 994 mörk í Meistardeildinni. Hana vantar aðeins fjögur mörk til þess að verða annar leikmaðurinn í sögunni til að rjúfa 1.000 marka múrinn.
- Ævintýralegur leikstíll Banik Most, sem einkennist af hröðum sóknarleik, opnaði dyrnar fyrir Krim að skora að vild. Banik Most hefur nú fengið á sig 129 mörk í þremur leikjum. Ekkert lið hefur fengið svo mörg mörk á sig í fyrstu þremur umferðunum í sögu Meistaradeildarinnar.
- Krim hefur aldrei náð að skora meira en 41 mark í þeim 286 leikjum sem liðið hefur leikið í Meistaradeildinni þar til nú.
FTC 20 – 21 Brest (9 – 12)
- Cleopatre Darleux markvörður Brest hóf leikinn á því að verja fyrst þrjú skot ungverska liðsins sem lagði grunn að 4-0 forskoti eftir fimm mínútna leik.
- FTC náði að koma til baka með góðum 4-0 kafla og minnkaði muninn niður í eitt mark undir lok fyrri hálfleiks.
- Franska liðið treysti mjög á Djurdjinu Jaukovic í sóknarleik sínum. Hún skoraði átta af 12 fyrstu mörkum liðsins.
- Jaukovic skoraði 12 mörk í leiknum en það er í annað sinn sem hún skorar meira en tíu mörk í leik á ferlinum.
- Síðast þegar að FTC hóf Meistaradeildina með tveimur tapleikjum náði liðið ekki að komast upp úr riðlakeppninni.
- Þetta var fyrsti sigurleikur Brest á leiktíðinni.
Staðan: | L | S | J | T | Markat. | Stig |
Vipers | 3 | 3 | 0 | 0 | 92 – 72 | 6 |
Bietigheim | 3 | 2 | 1 | 0 | 114 – 71 | 5 |
CSM Búkarest | 3 | 2 | 1 | 0 | 91 – 82 | 5 |
Odense | 3 | 1 | 0 | 2 | 91 – 83 | 2 |
Krim | 3 | 1 | 0 | 2 | 91 – 86 | 2 |
Brest | 3 | 1 | 0 | 2 | 71 – 84 | 2 |
FTC | 3 | 1 | 0 | 2 | 67 – 84 | 2 |
Banik Most | 3 | 0 | 0 | 3 | 74 – 129 | 0 |
B-riðill:
Lokomotiva Zagreb 24 – 25 Buducnost (14 – 13)
- Það var allt annað að sjá til króatíska liðsins í þessum leik en gegn Storhamar um síðustu helgi.
- Eftir mjög jafna byrjun þá náðu gestirnir í Buducnost 9-6 forystu á 17. mínútu.
- Hin tvítuga Klara Birtic skoraði fjórtánda mark króatíska liðsins og tryggði þeim eins marks forystu, 14-13, í hálfleik.
- Bæði lið áttu í erfiðleikum með að ná yfirhöndinni í seinni hálfleik en að lokum vóg reynsla leikmanna Buducnost meira og þær náðu að tryggja sér bæði stigin úr leiknum.
- Lena Ivancok markvörður króatíska liðsins varði níu skot á meðan Armelle Attingré markvörður Buducnost var með átta skot varin.
Györ 24 – 28 Metz (14 – 18)
- Eftir að franska liðið náði tveggja marka forystu, 7-5, eftir 10 mínútna leik fór allt úr skorðum hjá ungverska liðinu þar sem að það skoraði ekki að skora mark í níu mínútur.
- Sandra Toft markvörður Györ varði átta skot í fyrri hálfleik. Góð framistaða hennar náði þó ekki að hjálpa ungverska liðinu við að minnka muninn.
- Metz náði mest sjö marka forystu í leiknum. Leikmenn Györ reyndu hvað þeir gátu til að minnka muninn en mörg mistök af þeirra hálfu kom í veg fyrir það.
- Györ náði loks að laga sóknarleikinn hjá sér síðustu 10 mínúturnar en það var um seinan til að koma í veg fyrir tap.
- Chloé Valentini var markahæst í liði Metz með sjö mörk.
Kastamonu 26 – 33 Rapid Búkaresti (12 – 15)
- Kastamonu byrjaði vel með góðum varnarleik sem hjálpaði liðinu við að skora auðveld mörk. Leikmenn Rapid gerðu sig seka um mörg mistök á sama tíma.
- Þrjú mörk í röð frá Rapid varð til þess að liðið jafnaði metin, 9:9.
- Tyrkneska liðið náði ekki að skora í tíu mínútur síðla í fyrri hálfleik. Rúmenska liðið náði á þeim tíma fimm marka forskoti.
- Heimakonur byrjuðu seinni hálfleikinn af miklum krafti og náðu að minnka muninn niður í eitt mark, 22-23.
- Tyrkneska liðið gerði allt sem það gat til þess að næla í fyrstu stigin í Meistaradeildinni, spiluðu m.a. 7 á 6. Allt kom fyrir ekki og 17. tapið í röð í Meistaradeildinni varð staðreynd.
Esbjerg 35 – 25 Storhamar (21 – 10)
- Esbjerg byrjaði leikinn af krafti og komst fljótlega í 4-0 forystu. Það tók gestina sex mínútur að skora fyrsta markið í leiknum.
- Storhamar átti í miklum vandræðum í sóknarleiknum og var með undir 50% sóknarnýtingu. Á sama tíma var Esbjerg með um 80% sóknarnýtingu.
- Hægri skyttan Maja Jakobsen skoraði 9 mörk fyrir Storhamar.
- 11 af 12 útileikmönnum Esbjerg náðu að skora í leiknum.
Staðan: | L | S | J | T | Markat. | Stig |
Metz | 3 | 2 | 1 | 0 | 91 – 78 | 5 |
Rapid Búkarest | 3 | 2 | 1 | 0 | 96 – 85 | 5 |
Györ | 3 | 2 | 0 | 1 | 99 – 82 | 4 |
Esbjerg | 3 | 2 | 0 | 1 | 92 – 79 | 4 |
Buducnost | 3 | 2 | 0 | 1 | 88 – 79 | 4 |
Storhamar | 3 | 1 | 0 | 2 | 84 – 79 | 2 |
Lok.Zagreb | 3 | 0 | 0 | 3 | 64 – 93 | 0 |
Kastamonu | 3 | 0 | 0 | 3 | 78 – 117 | 0 |