Sjötta umferð Meistaradeildar kvenna í handknattleik fór fram um helgina. Þetta var jafnframt síðasta umferð áður en EM kvenna hefst í byrjun nóvember. Þessarar umferðar verður líklega minnst fyrir að þýska liðið Bietigheim tapaði fyrir Odense 31 – 24. Bietigheim hafði leikið 64 leiki í röð á öllum mótum án taps fyrir leikinn á Fjóni.
Nýliðarnir í Rapid Búkaresti halda áfram að koma á óvart. Rapid vann Storhamar, 27 – 25, og eru nú með tíu stig í öðru sæti B-riðils með jafn mörg stig og ungverska liðið Györ, sem vann Buducnost, 32 – 19.
Basl er áfram hjá Lokomotiva og Kastamonu. Bæði lið töpuðu sínum leikjum stórt. Lokomotiva mætti franska liðinu Metz og tapaði með 25 marka mun, 38 – 13. Kastamonu þurfti að sætta sig við tap á heimavelli fyrir Esbjerg, 43 – 27.
Úrslit helgarinnar
A-riðill:
Krim 24 – 22 Brest (12 – 10)
- Þrjú mörk frá Jovönku Radicevic í upphafi leiks hjálpuðu heimakonum að leggja grunn að 4 – 0 forskoti. Það tók franska liðið 7 mínútur og 27 sekúndur að skora fyrsta markið í leiknum.
- Franska liðið reyndi að berjast til sigurs en slæmur kafli undir miðjan seinni hálfleik kom í veg fyrir að það fengi eitthvað útúr leiknum.
- Bæði lið áttu í erfiðleikum í sóknarleiknum. Krim var aðeins með 39% sóknarnýtingu og Brest 38%.
- Jovanka Radicevic skoraði sex mörk og nálgast nú óðum met Anitu Görbicz sem markahæsta leikmann allra tíma í Meistaradeild kvenna. Radicevic hefur alls skorað 1.013 mörk og vantar aðeins þrjú mörk til þess að bæta met Görbicz.
- Barbara Arenhart markvörður Krim var valin maður leiksins. Hún varði 20 skot, eða 47,6%.
Odense 31 – 24 Bietigheim (14 – 12)
- Meiðslum hrjáð lið Odense byrjaði þennan leik mun betur og var með tveggja marka forystu í hálfleik 14 – 12.
- Odense tókst að vinna Bietigheim, nokkuð sem engu liði hafði tekist í 64 leikjum á undan. Þýska liðið tapaði síðast í mars 2021.
- Mia Hojlund var óstöðvandi í liði Odense. Hún skoraði 10 mörk úr 14 skotum.
- Markverðir Bietigheim náðu sér lítt á strik. Gabriela Dias Moreschi og Melinda Szikora vörðu aðeins sjö skot.
- Eftir frábæra byrjun á tímabilinu er Bietigheim ekki lengur með bestu sóknina í riðlinum. Liðið hefur skorað 33,1 mark að jafnaði í leik.
Vipers 35 – 29 CSM Búkaresti (15 – 15)
- Eftir að hafa gert jafntefli við Esbjerg á síðustu leiktíð hafði rúmenska liðið ekki tapað sex leikjum í röð í Meistaradeildinni.
- Vinstri skyttan Marketa Jerabkova átti sinn langbesta leik á leiktíðinni. Hún skoraði ellefu mörk fyrir Vipers.
- Cristina Neagu hélt uppteknum hætti hjá rúmenska liðinu og var markahæst með tíu mörk.
- Þetta er í fyrsta sinn síðan í janúar 2019 sem CSM fær á sig svona mörg mörk í einum leik.
Banik Most 27 – 46 FTC (11 – 26)
- FTC bætti met sitt yfir flest mörk skoruðu í einum leik í Evrópukeppnum. Fyrra met félagsins var 42 mörk gegn gríska liðinu Anagennisi Artas.
- FTC lék besta hálfleik í sögu félagsins í Meistaradeild kvenna og skoraði 26 mörk í fyrri hálfleik og var með fimmtán marka forystu í hálfleik, 26 – 11.
- Ungverska liðinu vantaði aðeins eitt mark til þess að ná að bæta metið yfir flest mörk skoruð í einum leik í Meistaradeild kvenna. Metið er 47 mörk og er í eigu Vardar.
- Katrin Klujber hægri skytta FTC skoraði 11 mörk fyrir ungverska liðið. Hún er orðin markahæst í Meistaradeildinni með 49 mörk í sex leikjum.
- Þetta var í fimmta sinn í sex leikjum sem að Banik Most fær á fleiri en 40 mörk í leik. Meðaltalið er 41,1 sem afleit staðreynd.
B-riðill:
Kastamonu 27 – 43 Esbjerg (12 – 25)
- Þetta var fjórði sigur Esbjerg í síðustu fimm leikjum.
- 5 – 0 kafli danska liðsins á þremur mínútum í fyrri hálfleik lagði grunn að 11 – 5 forystu.
- Eftir að hafa unnið Lokomotiva í síðustu umferð voru leikmönnum Kastamonu kippt aftur niður á jörðina.
- Þetta er stærsti sigur danska liðsins í Meistaradeildinni. Fyrra met var sett þegar Esbjerg vann Buducnost með fimmtán marka mun.
Rapid Búkaresti 27 – 25 Storhamar (14 – 15)
- Rapid eru enn ósigrað í Meistaradeildinni. Liðið hefur unnið fjóra leiki og gert tvö jafntefli. Rapid er öðru sæti riðilsins með jafnmörg stig og Györ. Ungverska liðið hefur betri markatölu.
- Ivana Kapitanovic markvörður Rapid kom inná í upphafi seinni hálfleiks og varði 42,1% af þeim skotum sem á mark hennar komu.
- Jennifer Gutierrez Bermejo vinstri hornamaður Rapid skoraði fimm af síðustu sjö mörkum rúmenska liðsins í þessum leik og átti stóran þátt í því að ná 8 – 4 kafla á lokamínútum leiksins.
- Norska liðið hefur tapað þremur útileikjum í röð í Meistaradeildinni. Lokakaflinn í leiknum var liðinu erfiður eins og getið er um að ofan. Storhamar var yfir, 21 – 19, þegar tólf mínútur voru eftir af leiknum.
- Rapid er eina taplausa liðið í Meistaradeild kvenna.
Györ 32 – 19 Buducnost (15 – 9)
- Ungverska liðið byrjaði leikinn af miklum krafti og þá í sér í lagi varnarlega. Það tók gestina fimm mínútur að skora fyrsta markið í leiknum. Eftir markið liðu níu mínútur þar til annað markið var skorað.
- Silje Margaretha Solberg átti enn einn stórleikinn í marki ungverska liðsins. Hún var með yfir 40% markvörslu.
- Veronica Kristiansen var markahæst í liði Györ með sex mörk. Hjá Buducnost var það Ivona Pavicevic sem var markahæst með fimm mörk.
Metz 38 – 13 Lokomotiva Zagreb (20 – 6)
- Fyrsta og eina skiptið sem Lokomotiva hafði forystu í leiknum var í upphafi, 1 – 0. Eftir það var bara eitt lið á vellinum og franska liðið náði tíu marka forystu eftir um 15 mínútur.
- Þrátt fyrir að sóknarleikur króatíska liðsins hafi ekki verið burðugur, 33% sóknarnýting í fyrri hálfleik og 35% í seinni, var var varnarleikurinn helsti hausverkur liðsins.
- 14 marka forysta Metz í fyrri hálfleik er næst mesti munur í hálfleik í sögu Meistaradeildarinnar. Jafnframt er 25 marka sigur næst stærsti sigur í sögu Meistaradeildarinnar.
- Stela Posavec var eini leikmaður Lokomotiva sem náði sér á strik á vellinum. Hún skoraði fjögur mörk.
- Chloé Valentini var markahæst í liði Metz með sjö mörk.
Staðan:
A-riðill: | ||||||
Bietigheim | 6 | 4 | 1 | 1 | 200 – 155 | 9 |
Vipers | 6 | 4 | 1 | 1 | 183 – 159 | 9 |
CSM Bucaresti | 6 | 4 | 1 | 1 | 191 – 169 | 9 |
FTC | 6 | 3 | 1 | 2 | 171 – 167 | 7 |
Odense | 6 | 3 | 0 | 3 | 174 – 159 | 6 |
Krim | 6 | 2 | 0 | 4 | 168 – 170 | 4 |
Brest | 6 | 2 | 0 | 4 | 145 – 159 | 4 |
Banik Most | 6 | 0 | 0 | 6 | 152 – 246 | 0 |
B-riðill: | ||||||
Györ | 6 | 5 | 0 | 1 | 198 – 138 | 10 |
Rapid | 6 | 4 | 2 | 0 | 187 – 172 | 10 |
Metz | 6 | 4 | 1 | 1 | 193 – 154 | 9 |
Esbjerg | 6 | 4 | 0 | 2 | 202 – 168 | 8 |
Buducnost | 6 | 2 | 1 | 3 | 165 – 177 | 5 |
Storhamar | 6 | 2 | 0 | 4 | 161 – 170 | 4 |
Kastamonu | 6 | 1 | 0 | 5 | 160 – 214 | 2 |
Lokom. Zagreb | 6 | 0 | 0 | 6 | 116 – 189 | 0 |