- Auglýsing -
Fyrir hádegið í dag, sunnudag, var í fyrsta sinn leikið til úrslita í Poweradebikarnum í 5. flokki karla og kvenna samhliða bikardögum Handknattleikssambands Íslands í Laugardalshöll. Þessari nýbreytni var vel tekið og nutu börnin sín að leika í frábærri umgjörð. Ljóst er að framhald verður á.
Hér fyrir neðan eru myndir af bikarmeisturunum í flokkunum fjórum um leið og liðunum er óskað til hamingju.
5. flokkur karla, eldra ár: FH – Selfoss, 24:20.
5. flokkur karla, yngra ár: FH – ÍR, 21:17.
5. flokkur kvenna, eldra ár: Valur – Grótta, 20:13.
5. flokkur kvenna, yngra ár: HK – ÍR, 14:9.
- Auglýsing -