- Auglýsing -
Næstu þrír leikir í Meistaradeild kvenna í handknattleik munu gefa skýrari mynd af toppbaráttunni í B-riðli. Annað kvöld mun topplið Györ mæta Buducnost en þær ungversku freista þess að koma sér aftur á sigurbraut eftir að hafa þurft að sætta sig við jafntefli í síðustu tveimur leikjum. Þó að þær ungversku nái að vinna gætu þær misst toppsætið í riðlinum til CSKA. Rússneska liðið á fyrir höndum að mæta botnliði Podravka í tveimur leikjum í Moskvu sem fara fram á sunnudag og mánudag.
Buducnost – Györ | Föstudagur 29. janúar kl. 17.00
- Györ er á toppi B-riðils Meistaradeildarinnar með 18 stig og er taplaust í 48 leikjum í röð.
 - Györ hefur þurft að sætta sig við jafntefli í síðustu tveimur leikjum, á útivelli gegn Odense og á heimavelli við Brest.
 - Buducnost hefur sigrað í síðustu þremur heimaleikjum.
 - Bojana Popovic þjálfari Buducnost greindist með Covid-19 á dögunum og getur ekki stjórnað liðinu annað kvöld. Milena Raicevic og Suzana Lazovic stýra liðinu í fjarveru Popovic.
 - Györ vann fyrri leik liðann sem fram fór í nóvember, 34-29.
 - CSKA – Podravka | Sunnudagur 31. janúar kl. 12.00
 
CSKA – Podravka | Mánudagur 1. febrúar kl. 15.00
- CSKA er í öðru sæti riðilsins með 17 stig, einu færra en Györ. Þær rússnesku eiga þó einn leik inni á þær ungversku
 - Með sigri í þessum tveimur leikjum tryggir CSKA sér toppsætið í riðlinum.
 - Þær rússnesku byrjuðu árið vel en þær hafa unnið þrjá leiki í röð, gegn Brest, Dortmund og Valcea.
 - Podravka hafa tapað átta leikjum í röð
 - Liðin hafa ekki mæst áður í Evópukeppni.
 
- Auglýsing -



