- Auglýsing -
Fjögur lið frá Stjörnunni í 4. og 5. flokki kvenna og karla hafa gert það gott síðustu daga á handknattleiksmótinu, Generation Handball, í Viborg í Danmörku.
4. flokkur kvenna, 15 ára, komst í A-úrslit mótsins og kemur heim með silfurverðlaun frá mótinu eftir tap fyrir sterku liði Skive, 17:11, í úrslitaleik.
Öll liðin í 4. og 5. flokki karla komust í A-úrslit sem er mjög góður árangur.
Á myndinni að ofan er silfurlið Stjörnunnar í 4. flokki kvenna ásamt leikmönnum Skive eftir úrslitaleikinn í Viborg í dag.
Danmerkurferðin er hluti af undirbúningi flokkanna fyrir komandi vetur og ljóst er að efniviður er fyrir hendi hjá Stjörnunni.
- Auglýsing -