Ólafur Stefánsson er hættur störfum hjá þýska 1. deildarliðinu HC Erlangen í Nürnberg en hann hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins í nærri hálft annað ár. Ólafur segir frá brotthvarfi sínu í samtali við Vísir í morgun. Þegar hefur verið samið um starfslok og Ólafur er byrjaður að líta í kringum sem sig eftir nýju skipsrúmi.
Svo virðist af viðtalinu við Ólaf á Vísir að honum hafi ekki líkað þegar framhjá honum var gengið í sumar er Raúl Alonso hætti þjálfun liðsins í sumar og Hartmut Mayerhoffer var ráðinn í hans stað. Alonso tók við fyrra starfi sínu sem íþróttastjóri HC Erlangen.
Félagið ákvað að ráða annan
„Ég var aðstoðarþjálfari þarna í 15 mánuði og starfaði þar með aðalþjálfara sem var einnig íþróttastjóri hjá félaginu. Sá maður ákveður, með frekar stuttum fyrirvara, að hætta sem þjálfari og einbeita sér að íþróttastjórastöðunni og í staðinn fyrir að taka mig inn sem aðalþjálfara, ákveður félagið að ráða inn annan þjálfara í aðalþjálfarastöðuna,” segir Ólafur í samtali við Vísir í morgun.
Sjá einnig:
Semur við Erlangen til eins árs